Ađalvalmynd

Auglýsing

Brúđkaupiđ upplýsingar

Niđurtalning í brúđkaup

Innskráningar kubbur

Flutt tilbaka

03. desember 2007 klukkan 15:21
jæja ég var víst með bloggsíðu áður en ég hóf að nota þessa og nú ætla ég til baka á hana :)  Sýnist nú heimsóknirnar á þessa líka ekki vera margar :P

en ef þið viljið kíkja þá er hin síðan www.rakels.wordpress.com ,  svo sem ekkert svakalegt blogg, enda ég seint talinn góður bloggari!

Ég ætla nú samt ekki að taka þessa út í bili, gaman að kíkja á hana annað slagið.

Kveðja Rakel

Styttist í jól, próf, afmćli................

14. nóvember 2007 klukkan 09:40

Góðan daginn
Frá okkur er allt gott að frétta og svo sem ekkert nýtt, lífið og tilveran saman stendur af vinnu, skóla, leikskóla, lærdómi, heimilisverkum og öllu þessu venjulega.
Það eru bara tæpar þrjár vikur í fjögurra ára afmælið hennar Natalíu, trúi því hreinlega ekki að litla barnið sé að verða fjögurra ára! Svona er lífið :)
Prófin mín byrja líka á afmælisdaginn hennar Natalíu, svo það er nóg framundan.  Ég fæ reyndar að skipuleggjaprófin þannig að þau verða ekki svo "óþægileg".  Ég fæ nefnilega að taka fjarnámsprófin mín með dagskólanum og þannig næ ég að dreifa prófunum yfir vikuna og verð búin í prófum 7.desember.  Þá er ágætis tími sem ég hef til að klára allt sem þarf fyrir jólin og njóta þess að vera í jólafríi.  Verð eflaust eitthvað með Natalíu heima, gerði það alla vega í fyrra að hafa hana stutt í leikskólanum og þegar nær dregur jólum er rosa gott að geta bara kúrt saman á morgnana og föndrað eða eitthvað.

Annars vorum við stelpurnar í skólanum að ákveða að skella okkur í námsferð til Kaupmannahafnar í vor.  Ætlum að stefna á að komast á tannlæknasýninguna þar í apríl, rosa spennandi.  Erum búnar að senda póst á ýmsa staði til að kanna með styrki og vonandi kemur eitthvað gott út úr því.

Hafið það nú gott
kær kveðja Rakel

Kominn tími á blogg...........?

22. október 2007 klukkan 20:35
Ragnheiði finnst kominn tími á blogg, mér finnst nú eiginlega heldur kominn tími á lengingu sólarhringsins, þá hefði maður kannski tíma til að skrifa blogg...:P
Tími er alla vega það sem maður hefur af ansi skornum skammti þessa dagana.  Krummi er nánast alltaf í vinnunni, við "hittum" hann yfir blánóttina og svo svona kannski einn og hálfan dag í hverri viku.  Annars hefur þetta verið alveg allt í lagi, ég er búin að vera að drukkna í verkefnavinnu og glósugerð,  svo reynir maður eftir mesta megni að sinna prinsessunni eins vel og hægt er, ég nýti svo tímann eftir að hún er sofnuð til þess að læra.  Það eina sem verður kannski útundan í öllu þessu eru heimilisverkin, en þau hlaupa svo sem ekki langt svo það er lagi.

Annars er svo sem ekkert mikið að frétta af okkur hjónum, við höfum það bara gott svona inn á milli anna.  Fórum reyndar með vinnunni hans Krumma í rosa skemmtilega ferð til Montreal í Kanada, skemmtum okkur vel og náðum að versla svolítið af fötum á Natalíu og pínkulítið á okkur.  Krummi veiktist reyndar úti og kom veikur heim svo það og erfiða flugferðin heim var það eina sem skyggði eitthvað á ferðina.  Við þurftum nefnilega að bíða í 2 klukkutíma í flugvélinni á vellinum úti áður en hún mátti fara í loftið, vegna einhvers leka og svo var ókyrrð alla leiðina heim.  Eftir heimkomuna er bara búin að vera stanslaus vinna á Krumma og nóg af verkefnum og öðru fyrir mig að sinna.

Kveðja Rakel tímalausa eiginkonan

Long time no see :)

24. ágúst 2007 klukkan 16:23

Nú er lífið að komast í fastar skorður á ný eftir sumarfrí, Krummi greyið var nú ekki nema í tvær vikur í fríi en það voru mjög góðar vikur :)  Við Natalía aftur á móti vorum í sumarfríi þar til í þessari viku.  Hún var mjög ánægð að fara á leikskólann en samt finnst henni alls ekki leiðinlegt að vera heima með mömmu. 
Ég sótti stundatöfluna fyrir skólan á mánudaginn og átti að byrja á miðvikudaginn, en það varð skemmtileg breyting á og ég komst inn í verknámið ári fyrr en ég hefði átt að fara og fæ að ljúka þeim bóklegu fögum sem ég þarf til að útskrifast, í fjarnámi með verknáminu. Ég verð sem sagt orðin tanntæknir í maí á næsta ári :)   
Ég byrja svo í fullu á skólanum á mánudaginn.  Krummi verður ekkert í skóla núna (alla vega ekki í haust) enda útskrifaður og ágætt að taka pásu eftir annasaman vetur í fyrra.  Hann sést nú ekki mikið hér heima, alltaf nóg að gera í vinnunni, svo við Natalía dúllum okkur helling saman tvær. 

Við erum í augnablikinu að vinna möppu fyrir leikskólann hennar, einskonar ferilmöppu sem á að fylgja henni áfram.  Við fórum saman í Odda áðan og hún fékk að velja sér möppu og við keyptum einhverja límmiða og dúllerí til að nota við föndrið.

Kveðja Rakel

Brúđkaupsferđin yfirstađin

24. júlí 2007 klukkan 19:38

Við skelltum okkur til Parísar á föstudaginn fyrir tæpum tveim vikum og vorum þar í tæpa fimm daga.  Þetta var hreint út sagt yndisleg ferð í alla staði, við sáum helling (eigum samt helling eftir að skoða næst :))  og gengum nánast af okkur fæturna. 
Við skoðuðum alla þessa helstu staði, fórum upp í Effel-turninn, skoðuðum Sigurbogann, Versali, Notre Dame, Louvre safnið, Sacre cour kirkjuna og helling í viðbót.  Hótelið okkar var á frábærum stað rétt hjá effel turninum, sáum hann útum gluggann á herberginu okkar :) 
Við fórum eitt kvöldið extra flott út að  borða, vorum meira að segja búin að panta borð hér heima áður en við fórum út,  þar fengum við æðislegan mat!, meðal annars íslenskan þorsk, kanínu, lax og önd.  Krummi fékk sér svo úrval af ostum í eftirrétt og ég fékk mér ís :P smakkaði reyndar einn bita af camenbert hjá Krumma.  Við getum alla vega vel mælt með þessum veitingastað fyrir þá sem leggja leið sína til París, hann heitir Le Train Bleu og er á Gare du Lyon lestarstöðinni (
http://www.le-train-bleu.com/ )

Ég skellti inn nokkrum myndum af ferðinni, ef þið viljið vita meira eða sjá fleiri myndir þá verðið þið bara að kíkja í heimsókn :)

Svo vildi ég endilega biðja þá sem að tóku myndir í athöfninni eða veislunni að annað hvort að senda mér þær(
rakels@hive.is / krummi@hive.is ) eða skrifa á disk.........  langar endilega að eiga fleiri myndir af þessum yndislega degi okkar :)

vonandi hafið þið það jafn gott og við :)
kveðja frá hjónunum

Kakan

10. júlí 2007 klukkan 20:36
Súkkulaðisæla

70 gr smjör
100 gr suðusúkkulaði
3 stk egg
3 dl. sykur
1 1/2 dl hveiti  (einn og hálfur dl)
1 tsk salt
1 tsk vanilludropar


Karamellusósa
50 gr smjör
1 dl púðursykur
2 msk rjómi

1 pakki pecan hnetur
100 gr suðusúkkulaði

Bræðið sýkkulaðið og smjörið yfir vatnsbaði (ja eða bara í örbylgjunni :)),  þeytið eggin í létta froðu, hrærið þurrefnunum saman við, síðan bræddu súkkulaðinu, smjörinu og vanilludropunum.
Hellið í form (ég notaði smelluform) og bakið við 175° í 15 mínútur

Sósan
Hitið smjörið og sykurinn að suðu og hrærið stöðugt í á meðan.  Takið af hellunni og kælið lítið eitt áður en rjómanum er blandað saman við.  Stráið hnetunum gróft söxuðum yfir hálf bakaðann botninn.  Hellið karamellunni yfir og bakið í 15 mínútur í viðbót.  Stráið brytjuðu súkkulaði yfir heita kökuna og berið fram með ís/rjóma.

Hér hafiði þetta, fráhvarfseinkennin á enda :)  Ég skal búa til sér link hér til hliðar með uppskriftinni svo enginn týni henni :)

Orđin Hjón

08. júlí 2007 klukkan 23:05
Já þá er þetta víst búið, manni finnst það nú hálf furðulegt ennþá.
Gærdagurinn var hreint út sagt æðislegur, það gekk allt upp og við og að ég held allir hafi skemmt sér konunglega.
Stemmningin var sett í athöfninn, prestinum tókst að hafa þetta allt eins og við höfðum óskað okkur :) létt og skemmtilegt en samt með hátíðlegu yfirbragði og söngurinn var náttúrulega alveg æðislegur ;) 
Við fundum hvorugt fyrir miklu stressi fyrr en rétt fyrir athöfn, Krummi sérstaklega vegna þess að organistinn mætti pínku seint á svæðið (að okkar mati) var sestur við orgelið rúmum fimm mínútum fyrir athöfn.  Ég fann stressið pínku hellast í mig þegar ég var komin inn í kirkjuna og svo læddist eitt gleðitár niður þegar brúðarmarsinn byrjaði, svo ég þurrkaði það á leiðinni inn :)
Eftir athöfnina fórum við í myndatöku sem gekk eins og í sögu, fyrir utan það að hælarnir á skónum mínum voru eins og tjaldhælar í Elliðaárdalnum og stungust ofan í jörðina en það truflaði svo sem ekkert nema þeir voru ansi skítugir á eftir :P

Móttakan í salnum var rosa flott og gaman að sjá hvað margir voru saman komnir að gleðjast með okkur.  Veislan var æðisleg í alla staði maturinn sem var sko nóg af rosa góður og kakan heppnaðist rosa vel (hefði greinilega ekki þurft að baka þennan seinasta botn sem ég bakaði á föstudagskvöld).  Tónlistin skapaði akkurat þetta stuð sem við vildum og við erum ekkert smá kát með hvað það heppnaðist vel að færa veisluna úr rólega gírnum í stuðið.

Ég ætla nú ekkert að hafa þetta lengra í bili, vil í lokin þakka öllum fyrir komuna og allar gjafirnar og svo sérstaklega þeim sem eru búnir að vera okkur ómetanleg hjálp í þessu öllu ;)


Kveðja Rakel og Krummi nýgiftu hjónin :) :)
p.s. ég skelli inn myndum þegar ég er búin að koma þeim inn á tölvuna og líka uppskriftinni af brúðartertunni :)

Ekkert stress

06. júlí 2007 klukkan 01:12
Svo ég svari spurningunni frá Hans Steinar í gestabókinni þá er varla að finna fyrir stressi,  kannski svona 2x á dag í 10 mínútur í einu kemur smá panikk en annars allt voða rólegt.

Ég setti inn rétt símanúmer fyir Hans Steinar, hitt var víst gamalt Krummi á alla ábyrgð á þessum ruglingi, hann lét mig hafa vitlaust númer :P

Við fórum á æfingu í kirkjunni í dag, hún gekk mjög vel,  þetta gengur vonandi nokkuð snuðrulaust fyrir sig á laugardaginn.

Síðasti undirbúningsdagurinn á morgun og nóg að gera :)

Hlakka til að sjá alla á laugardaginn, veit ekki hvort ég blogga eitthvað fyrir stóra daginn.

Kveðja Rakel - gift kona eftir 2 daga

Gleymin

04. júlí 2007 klukkan 09:21

Við gleymdum alveg að nefna afmælisbarn dagsins hér í gær, hann Krummi varð sem sagt 24 ára í gær.

Til hamingju ástin mín :*

Við fórum svo í salinn ásamt mömmu, Guju og vinkonu hennar sem sér um blómin og hjálpar með skreytingarnar og þetta lítur allt vel út, verður nóg að gera næstu daga en svoleiðis á það líka að vera :)


best að halda áfram


Kveðja Rakel

furđulegt ađ sjá teljarann í 4

03. júlí 2007 klukkan 10:55
Ég man svo vel eftir að hafa séð niðurteljarann hér á síðunni "104 dagar í brúðkaup" og þá fannst mér svo langt í þetta og nú eru bara fjórir dagar til stefnu.

Ég get nú ekki sagt annað en að fiðringurinn sé að koma hægt og rólega, en ég er samt óvenjulega róleg.  Stressast nú oft mikið yfir einhverju mun minna en ég er mjög ánægð að geta tekið þetta í rólegheitunum, fékk reyndar smá panikk kast í gærkvöldi en það stóð ekki lengi, enda ekkert til að stressa sig yfir!

við mamma ætlum að skella okkur í brúnkusprey á morgun, svo við verðum nú sumarlegar og sællegar á daginn sjálfan.

Við fórum öll fjölskyldan í klippingu og ég í litun í gær, erum rosa flott öll saman, Natalía orðin  mun skárri sérstaklega ef hárið er uppsett, hún fer líka í greiðslu svo það ætti ekki að sjást svo svakalega að hún klippti sig sjálf.

Jæja best að halda á fram að undirbúa, er reyndar mest í að þrífa hér heima núna en það þarf víst líka :)

Hafið það gott
Kveðja Rakel

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit